Jólatónleikar í boði Landsbankans
Karlakórinn Lóuþrælar heldur jólatónleika í barnaskólanum á Borðeyri í kvöld miðvikudaginn 14. desember kl. 20:30 og Félagsheimilinu á Hvammstanga á morgun fimmtudaginn 15. desember kl. 20:30. Stjórnandi kórsins er Guðmund St. Sigurðsson og undirleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Einsöngvarar verða þeir Guðmundur Þorbergsson og Elvar Logi Friðriksson. Kynnir Berglind Guðmundsdóttir og hugvekju flytur Katharina Ruppel.
Á söngskránni eru jóla- og aðventulög, íslensk og erlend. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum þar sem þeir eru í boði Landsbankans á Hvammstanga.