Jólavaka í Höfðaborg
Jólavaka Grunnskólans austan Vatna. Notaleg kvöldstund í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi, fimmtudagskvöldið 14. desember kl. 19.30.
Rúnar Páll á Grindum er ræðumaður kvöldsins. Nemendur grunnskólans skemmta gestum með tónlistaratriðum, sögum og annarri snilld og að lokum sér Malen Áskelsdóttir söngkona um að syngja inn jólin. Smákökur og gotterí á borðum. Frítt fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri, 2500 kr. fyrir fullorðna.