Jómfrúarferð nýja slökkviliðsbílsins í Húnaþingi vestra

Nýji slökkviliðsbíllinn hjá Brunavörnum Húnaþings vestra.
Nýji slökkviliðsbíllinn hjá Brunavörnum Húnaþings vestra.

Slökkvilið Húnaþings vestra var kallað út í gær þegar eldur kviknaði í sendiferðabíl Flugfélags Íslands við Staðarskála. Þarna var um jómfrúarferð nýja slökkviliðsbílsins að ræða og stóðst hann allar væntingar slökkviliðsmanna.

Á Vísi.is segir að svo heppilega hafi viljað til að ökumaðurinn sendibílsins hafði fært bílinn frá bensíndælunum augnablikum fyrr en hann var alelda þegar slökkviliðið kom á staðinn.

„Það var mikil mildi að hann ók bílnum frá dælunum því,“ segir Pétur Ragnar Arnarsson, slökkviliðsstjóri á Hvammstanga í samtali við Vísi.is. Í bílnum voru ýmsir varahlutir, olía og því um líkt fyrir flugvélar. Allt er ónýtt, þar með talinn bíllinn.

Sjá Vísir.is

Fleiri fréttir