Júlíus Már nýr formaður ERL

Á aðalfundi ERL (Eigenda og ræktenda íslensku Landnámshænunnar) sem haldinn var í bændahöllinni sl. laugardag, varð sú breytinga á stjórn félagsins að Júlíus Már Baldursson að  Tjörn á Vatnsnesi var kosinn nýr formaður félagsins til næstu þriggja ára.

Jóhanna Harðardóttir lét nú af störfum sem formaður þess frá upphafi en hún mun vinna blað félagsins á næsta ári. Aðrir sem voru kjörnir í stjórn voru: Guðný Gísladóttir frá Dalmynni verður ritari, Hugi Ármannsson í varastjórn og Jón Björnsson endurskoðandi reikninga.

Að sögn nýkjörins formanns var fundurinn góður og margt rætt enda hafa margir frá ýmsu að segja frá sinni ræktun.

Fleiri fréttir