Kæri Sauðkræklingur

Sauðkrækingar hafa aldrei verið ánægðir með að vera kallaðir Sauðkræklingar með „elli“ og munu líklega ekki verða það í náinni framtíð og því hafa efalaust margir sopið hveljur í morgun þegar inn um bréfalúgu Króksara kom dreifibréf  frá Símanum stílað: Kæri Sauðkræklingur.

Síminn ætlar að útvíkka þjónustu sína á landsbyggðinni með því að færa 53 nýjum stöðum Ljósnetið á árinu, þar á meðal er Sauðárkrókur. En spurningin er hvort þetta klaufalega ávarp hafi glatt mannskapinn, því mikið hefur gengið á hjá Faebook notendum sem vilja fá afsökunarbeiðni frá Símanum.

Fleiri fréttir