Kærleiksrölt á Hólum

Í tilefni Valentínusardags í dag, þriðjudaginn 14. febrúar mun Ferðaþjónustan á Hólum, í samstarfi við nemendur Ferðamáladeildar, standa fyrir Kærleiksrölti um Hólastað sem inniheldur m.a. leiðsögn, kærleikskvöldverð og uppákomur fyrir alla fjölskylduna. 

Farið verður í kærleiksrölt frá skólabyggingu kl. 18 þaðan verður gengið í Hóladómkirkju, Auðunarstofu og Nýjabæ. „Endilega hafið með ykkur lugtir ef þið eigið þær til,“ segir í fréttatilkynningu.

Veitingastaðurinn Undir Byrðunni mun síðan bjóða upp á smáréttahlaðborð sem hentar allri fjölskyldunni. Verð er 1900 krónur á mann en börn á grunnskólaaldri greiða 690 krónur.

 

Fleiri fréttir