Kaldi átti besta bjórinn

Að þessu sinni var það Bruggsmiðjan Kaldi sem átti besta bjórinn. Mynd: GBE.
Að þessu sinni var það Bruggsmiðjan Kaldi sem átti besta bjórinn. Mynd: GBE.

Bjórhátíðin á Hólum í Hjaltadal, var haldin í áttunda skiptið sl. laugardag. Að þessu sinni voru 14 brugghús sem tóku þátt og hafa þau aldrei verið fleiri. Brugghúsin koma sum langar leiðir til að taka þátt í þessari helstu bjórhátíð landsins. Til dæmis, Beljandi frá Breiðdalsvík, Brother‘s Brewery í Vestmannaeyjum og Austri frá Egilsstöðum. Á næsta ári er svo von á að brugghús frá Ísafirði og Húsavík bætist í hópinn.

Hátíðin er líka mikil matarveisla fyrir gesti, en eins og fyrri ár voru heimagerðar Bratwurzt pylsur á boðstólnum, ásamt „toguðum grís“ (e. pulled-pork). Pretzel-ið var auðvitað á sínum stað og nú í ár bættist svo við matarframboðið, en argentínskar lambasteikarlokur voru grillaðar ofan í hátíðargesti. Mikil og góð stemming var á meðal gesta, enda ekki hægt annað á meðan nægur bjór er til staðar og gnótt matar.

Eins og áður, þá kjósa hátíðargestir bestu þrjá bjóra hátíðarinnar. Að þessu sinni var það Bruggsmiðjan Kaldi sem átti besta bjórinn. Öldur fékk svo verðlaun fyrir 2. og 3. sætið. Öldur fékk einnig verðlaun fyrir besta básinn.

Efstu þrjú sætin voru eftirfarandi fyrir besta bjórinn:

1. Bruggsmiðjan Kaldi – Belgískur Triple
2. Öldur – Blámi (bláberjamjöður)
3. Öldur – Rjóð (kirsuberjamjöður)

Við Bjórseturs- og Hólamenn þökkum hátíðargestum og brugghúsunum kærlega fyrir og ekki síst, öllum þeim frábæru sjálfboðaliðum sem koma að framkvæmd hátíðarinnar.

/Fréttatilkynning

Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur Björn Eyþórsson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir