Karlakórinn Heimir heldur tónleika í Reykholti og Reykjavík

Karlakórinn Heimir undirbýr sig nú fyrir tónleika sem haldnir verða í byrjun marsmánaðar. Þeir munu halda tónleika í Reykholti föstudaginn 9. mars og svo munu þeir halda tvenna stórtónleika ásamt Karlakór Reykjavíkur þann 10. mars, í Guðríðarkirkju í Grafarholti, kl. 15:00 og kl. 17:30.

Karlakórinn Heimir og Karlakór Reykjavíkur munu flytja margar af sínum bestu söngperlum í Guðríðarkirkju, segir á heimasíðu Karlakórsins Heimis, ásamt því að hefja raust sína saman. Miðasala á Reykjavíkurtónleikana er hafin á midi.is.

 

 

 

 

Fleiri fréttir