Karlakórinn Heimir syngur sunnan heiða um helgina
Karlakórinn Heimir ætlar að heimsækja suð-vesturhorn landsins um helgina og syngja fyrir söngþyrsta aðdáendur. Byrjað verður í Njarðvíkurkirkju föstudagskvöldið 25. febrúar kl. 20.30 en þar verður miðasalan við innganginn. Svo er það Langholtskirkja í Reykjavík laugardaginn 26. feb kl 15. Forsala aðgöngumiða í Eymundsson í Kringlunni (norður) og einnig selt við innganginn.
Í tilkynningu frá kórnum segir að þetta sé fyrsta ferð nýs stjórnanda kórsins í "menninguna sunnan heiða", Helgu Rósar Indriðadóttur, og spennandi að sjá t.d. hvernig þrekæfingarnar í Miðgarði hafa skilað sér! Undirleikari sem fyrr Thomas Higgerson. Síðan eru þarna komnir ungir og nýir barkar í bland við þá gömlu góðu...
Um túrinn segir annars á vef Heimis:
"Sérstakur gestur tónleikanna er hinn ungi harmonikkusnillingur Jón Þorsteinn Reynisson. Hann leikur með kórnum í nokkrum lögum og einnig fáein sígild verk gömlu meistaranna á ítalska Borsini Bayanina takkaharmoniku.
Þessa sömu söngskrá fluttum við á Þrettándatónleikum í Miðgarði við góðar viðtökur, og má jafnvel halda því fram að síðan sé söngstýran búin að slípa hana örlítið til."