Karlareið til heiðurs konum
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
28.07.2015
kl. 14.03
Í tilefni þess að 100 ár eru liðin síðan forfeður okkar veittu konum þessa lands aukið frelsi er ætlunin að heiðra minningu þeirra og slá í karlareið þann 8 ágúst. Riðið verður frá Laufskálarétt upp Víðinesdal yfir Almenningsháls ofan í Kolbeinsdal og út í Fjall og síðan í Glaðheima og hendum sneið á loga þar. Brottför klukkan 12:00.
Áætlað verð 4000 kr og síðasti skráningardagur er þriðjudagur 4.ágúst.
Upplýsingar og skráning hjá Marinó í síma 8450123 eða litli_dalur@simnet.is
og Jóni Ragnari í síma 8998032 eða jonragnargislason@gmail.com