Kaupfélagið lánar Svf. Skagafirði allt að kr. 600.000.000-

Sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum í gær að taka lán hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, vegna viðbyggingar og viðhaldsframkvæmda við Árskóla á Sauðárkróki. Er það gert með það að markmiði að sameina á einum stað skólahald Árskóla og til að bæta aðbúnað skólabarna og starfsmanna. Kaupfélagið lánar til verkefnisins allt að sexhundruð milljónir króna.

Miklar umræður sköpuðust um málið á fundinum og taldi Sigurjón Þórðarson, sveitarstjórnarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, að meirihluti Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafi staðið mjög óeðlilega að stærstu framkvæmd sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Kemur fram í bókun hans að: „Sú leynd sem ríkt hefur um verkkaup, kostnað og fjármögnun, getur ekki talist eðlileg af hálfu opinbers aðila í samskiptum sínum við eitt einstakt fyrirtæki, nú árið 2013 - nokkrum árum eftir hrun þegar krafan um gagnsæi verður sífellt háværari.“ Sigurjón segir að í aðdraganda byggingaframkvæmdanna hafi verið gefið í skyn að þær yrðu fjármagnaðar vaxtalaust á byggingartíma en svo er ekki samkvæmt fjármögnunarsamningi. Þar komi fram að vextir samkvæmt byggingarvísitölu falla á sveitarsjóð strax á framkvæmdatíma.

Stefán Vagn Stefánsson formaður Byggðarráðs sagði að mikilvægt væri að rétt sé með farið þegar rætt væri um tölur og staðreyndir. Benti hann Sigurjóni á að kynna sér málið áður en hann færi í ræðustól. Sagði hann jafnframt að engum gögnum hafi verið haldið frá fulltrúum minnihlutans í þessu máli þrátt fyrir ásakanir Sigurjóns um að það hafi verið gert.

Fjármögnunarsamningurinn var svo borin undir atkvæði og samþykktur með sjö atkvæðum, Viggó Jónsson og Sigurjón Þórðarson sátu hjá.

Fleiri fréttir