Keflavík sigraði naumlega í baráttuleik

Tindastóll fékk Keflavík í heimsókn í síðasta heimaleik sínum þennan veturinn í Iceland Express deildinni. Óhætt er að fullyrða að áhorfendur hafi skemmt sér hið besta á líflegum leik sem bauð upp á falleg tilþrif, gríðarlega baráttu og flautukonsert ágætra dómara. Tindastóll var stigi yfir í hálfleik eftir 3ja stiga flautukörfu frá Rikka en Keflvíkingar voru hænufetinu á undan í síðari hálfleik en Stólarnir áttu engu að síður möguleika á að stela sigrinum á lokasekúndunni en 3ja stiga skot frá Hayward Fain vildi ekki niður og Keflvíkingar fögnuðu sigri, 92-94.

Fyrir leik var það öruggt að Tindastóll héldi sæti sínu í deildinni eftir að lið Hamars hafði tapað kvöldið áður fyrir Snæfelli sem þar með tryggði sér deildarmeistaratitilinn. Þá var það kristaltært að til að komast í úrslitakeppnina dugði ekkert annað en sigur Stólunum. Fyrsti leikhlutinn í gærkvöldi virkaði þó frekar á áhorfendur sem fyrsti leikur að hausti, leikmenn virkuðu með ólíkindum kærulausir og klaufskir og virtust varla nenna að svekkja sig á mistökum. Keflvíkingar höfðu frumkvæðið í fyrsta leikhluta en þrátt fyrir öll mistökin héngu Stólarnir vel inni í leiknum og staðan eftir fyrsta leikhluta 19-21.

Annar leikhluti var fjörugur og það var Helgi Rafn sem dró vagninn fyrir Stólana og skoraði grimmt. Enn voru leikmönnum mislagðar hendur í sóknarleiknum en stigin mokuðust inn síðustu tvær mínúturnar í leikhlutanum en þá kom Svabbi sterkur inn og Rikki kláraði sem fyrr segir fyrri hálfleikinn með ískaldri 3ja stiga körfu um leið og leiktíminn rann út. Staðan í hálfleik 46-45 fyrir Tindastól.

Seinni hálfleikur var æsispennandi en Stólarnir voru skrefinu á undan framan af þriðja leikhluta. Nú kviknaði á leikstjórnanda Tindastóls og hann fór að láta til sín taka með fallegum gegnumbrotum. Kitanovic átti í ægilegri baráttu við Sigurð Þorsteinsson í teig Keflvíkinga en gekk lítið og var kappinn orðinn nokkuð æstur sem sýndi sig í því að hann vildi fara að gera hlutina upp á eigin spýtur en tapaði þá oftar en ekki boltanum. Keflvíkingar létu sömuleiðis baráttugleði heimamanna fara í sínar fínustu og náðu Stólarnir 5 stiga forystu eftir að Keflvíkingar fengu dæmt á sig tæknivíti, gerðu þá 6 stig í sömu sókninni. Gestirnir voru eldsnöggir að kvitta fyrir sig og voru komnir yfir stuttu síðar eftir þrjár eldsnöggar sóknir. Keflvíkingar leiddu síðan fyrir síðasta fjórðung, 69-71.

Þeir hófu fjórða leikhluta vel og þegar þrjár mínútur voru liðnar var munurinn orðinn níu stig, staðan 73-82. Á þessum kafla voru þeir sterkir Thomas Sanders og Maggi Gunn. Keflvíkingar voru hins vegar í villuvandræðum og voru fimm leikmenn hjá þeim með 4 villur og ljóst að Stólarnir gátu nýtt sér þá stöðu í sóknarleiknum því við hvert brot lá við að Keflvíkingur fengi sína fimmtu villu. Enda fór svo að gestirnir fóru að tínast út af. Jón Nordal hvarf reyndar á braut þeirra fystur eftir að hafa lent illa á öxlinni þegar hann kastaði sér á lausan bolta, síðan Sigurður  Þorsteins, þá Halldór Halldórsson og loks Thomas Sanders þegar lítið var eftir af leiknum og allt í járnum. Sanders meiddist reyndar þegar dæmdur var á hann ruðningur en kappinn féll illa á bakið og var studdur af velli eftir aðhlynningu. Síðustu sekúndurnar voru æsilegar eftir að Stólarnir jöfnuðu leikinn 90-90. Keflvíkingar áttu í mesta basli með að spila boltanum en Hörður Axel gerði vel í því að koma boltanum undir mikilli pressu út í hægra hornið þar sem Andrija Siric var einn á báti og hann gerði sér lítið fyrir og setti niður 3ja stiga körfu þegar um 10 sekúndur voru eftir. Stólarnir brunuðu upp og brotið var á Cunningham sem setti bæði skotin niður og minnkaði muninn í tvö stig. Helgi Rafn fékk sína fimmtu villu þegar hann braut á Magga Gunn um leið og Keflvíkingar hófu leik. Maggi klikkaði á fyrra skotinu sínu en setti það seinna niður og staðan 92-94 og rúmar 5 sekúndur eftir. Spurningin var sú hvort Stólarnir kæmust í færi til að jafna leikinn eða hvort þeir yrðu að taka sénsinn á sigurkörfu utan 3ja stiga línunnar. Fain valdi síðari kostinn en skotið klikkaði og Keflvíkingar fögnuðu sigri.

Þar með var ljóst að Tindastóll var ekki ná sæti í úrslitakeppninni en liðið hefur dregið lappirnar í síðustu leikjum og hefur tapað leikjum naumlega. Stundum er eins og skort hafi yfirvegun. Liðið hefur hins vegar sýnt skemmtileg tilþrif, oft spilað frábæra vörn en sóknarleikurinn hefur verið upp og ofan. Sennilega má fullyrða að óheppileg útlendingahersveit í upphafi móts hafi farið langt með að eyðileggja fyrir liðinu í vetur og sennilega áttu fáir von á því að Stólarnir héldu sér uppi miðað við stöðu liðsins að fimm umferðum loknum. En það er engu að síður talsvert svekkelsi að þessi ágæti hópur, sem sprakk út með tilkomu Fain, Cunningham og Svabba, skuli ekki hafa náð að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Í raun eru þær reglur KKÍ fáránlegar að lið geti styrkt sig og bætt við leikmönnum að vild út í hött. Það væri kannski eðlilegast að lokað yrði fyrir leikmannaskipti um miðjan janúar.

Leikurinn í gærkvöldi var fínn. Áhorfendur sáu dómara leiksins dæma 59 villur og leikmenn taka 64 vítaskot. Gestirnir voru nokkuð sterkari í teignum en sparsamir í 3ja stiga skotunuum. Helgi Rafn var stigahæstur Tindastólsmanna en kappinn setti niður 23 fín stig. Sanders gerði 24 stig fyrir Keflvíkinga.

Stig Tindatóls: Helgi Rafn 23, Fain 16, Cunningham 15, Svabbi 11, Kita 11, Rikki 11, Helgi Freyr 3 og Pálmi 2.

Fleiri fréttir