Keflvíkingar reyndust sterkari þegar upp var staðið

Lið Tindastóls sótti Keflvíkinga heim í Sláturhúsið síðastliðið föstudagskvöld og mátti þola 15 stiga tap, 93-78, eftir að hafa spilað vel framan af leik og í raun enn verið í góðum séns í byrjun fjórða leikhluta. Baráttan heldur svo áfram í kvöld þegar lið Snæfells kemur í heimsókn í Síkið.

Tindastóll byrjaði leikinn vel í Keflavík og hafði forystuna nær allan fyrsta leikhluta en það var rétt í byrjun sem Keflvíkingar voru yfir. Mest náðu Stólarnir átta stiga forystu en voru yfir 21-23 að loknum fyrsta leikhluta. Billy Baptist jafnaði leikinn í byrjun annars leikhluta en tvær 3ja stiga körfur frá Helga Margeirs og Drew Gibson komu Stólunum aftur í bílstjórasætið og þar voru þeir þangað til Magnús Gunnarsson jafnaði með einni af fjórum 3ja stiga körfum sínum í leiknum en kappinn reyndi 15 slík skot. Staðan í hálfleik 47-47.

Jafnt var á flestum tölum fram undir miðjan þriðja leikhluta en þá náðu heimamenn smá forskoti og voru sex stigum yfir af leikhlutanum loknum, 62-56. Tarick Johnson gerði fyrstu tvær körfurnar í fjórða leikhluta og minnkaði muninn í 62-60 en þá hrukku Keflvíkingar í gírinn og næstu mínútur gerðu þeir 29 stig gegn 12 stigum Stólanna og það var einmitt Maggi Gunn sem gerði síðustu körfu heimamenn fyrir utan 3ja stiga línuna og staðan 93-72. George Valentine gerði síðan þrjár síðustu körfur leiksins og lagaði stöðuna fyrir Tindastól. Lokatölur 93-78.

Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að stór þáttur í tapinu hafi verið að Keflvíkingar tóku mun fleiri fráköst, eða 54 á móti 38 fráköstum Stólanna. Valentine, Þröstur Leó og Gibson voru stigahæstir í liði Tindastóls.

Stig Tindastóls: Valentine 18, Gibson 14, Þröstur Leó 14, Johnson 9, Helgi Rafn 8, Hreinsi 8, Helgi Margeirs 5 og Svabbi 2.

Fleiri fréttir