Kelly Joe Phelps & Corinne West duo í Ásbyrgi á Laugarbakka
Kelly Joe Phelps & Corinne West duo halda tónleika í Félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka, föstudaginn 21. október nk. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð þeirra um Ísland, en þetta er í fyrsta sinn sem tvíeykið sækir landið heim.
Fram kemur á midi.is að hin bandarísku Kelly Joe og Corinne hafi tekið höndum saman árið 2009 og hafa verið óaðskiljanleg allar götur síðan en þau hafa hlotið mikið lof fyrir plötu sína, Magnetic Skyline sem kom út á síðasta ári. Hér er hægt að sjá myndband af „dúóinu.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og mun Beggi Smári og Smári Tarfur sjá um upphitun. Hljómsveitin Ylja mun vera sérstakur gestur á þessum tónleikum.
Hægt er að nálgast miða á midi.is og er miðaverið 2.000 kr.