Kelly Joe Phelps & Corinne West duo verða á Laugarbakka í kvöld

Kelly Joe Phelps & Corinne West duo halda tónleika í Félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð þeirra um landið þar sem þau spila lög af nýjustu plötu þeirra Magnetic Skyline, sem kom út á síðasta ári.

Tvíeykið haf nú þegar komið víða við en þau komu fram í Tónastöðinni Skipholti á þriðjudagskvöldið, Café Rosenberg á miðvikudagskvöldið og á Græna hattinum á Akureyri í gærkvöldi. Þau verða svo á Laugarbakka í kvöld og í Stykkishólmskirkju á laugardaginn. Hér er hægt að sjá myndband af „dúóinu“ flytja huglúfu þjóðlagatónlist sína í Tónastöðinni.

Tónleikarnir í Ásbyrgi hefjast kl. 20:00 og mun Beggi Smári og Smári Tarfur sjá um upphitun. Hljómsveitin Ylja mun vera sérstakur gestur á þessum tónleikum.

 

Fleiri fréttir