Keppni í KS-deildinni frestað
Vegna ótíðar Norðanheiða, frestast fimmgangsmótið sem vera átti í kvöld í KS-deildinni um hálfan mánuð til miðvikudagsins 20. mars. Ekki var fært að koma mótinu fyrir á öðrum dagssetningum. Að sögn Stefáns Reynissonar hjá Meistaradeild Norðurlands koma keppendur víða að og m.a. utan Skagafjarðar og ekki á það hættandi að draga kerrur við þær aðstæður sem nú eru.
Staða eftir fjórgangsmótið
Knapar Heild.stig
- 1 Ísólfur Líndal Þórisson 10
- 2 Bjarni Jónasson 8
- 3 Þorbjörn H Matthíasson 7
- 4 Viðar Bragason 6
- 5 Þórarinn Eymundsson 5
- 6 Elvar Einarsson 4
- 7 Bergrún Ingólfsdóttir 3
- 8 Líney María Hjálmarsdóttir 2
- 9 Sölvi Sigurðarson 1