Keppnisdúfa handsömuð í Miðhópi

Bændur í Miðhópi í Húnaþingi vestra tóku eftir því á dögunum að dúfa hélt orðið til í hlöðunni hjá þeim. Gáfu þau henni korn og át hún vel af því. Var svo komið að hún beið þeirra þegar þau komu í húsin á morgnanna til að fá sinn mat. Varð því úr að ná henni enda var hún merkt og því líklegt að hægt væri að koma henni í hendur eigenda sinna.

 

Frá þessu er greint á Húna.is en þar segir að notast hafi verið við kassa og spýtu til að handsama dúfuna og hann settur þar sem henni var gefið og spotti í spýtuna sem kippt var í meðan hún mataðist. Dúfan reyndist merkt á báðum fótum, annar miðinn var grænn en hitt merkið með númerinu 1866.

 

Dúfan var þátttakandi í keppni þar sem henni var sleppt á Húsavík og áttu þær að skila sér á höfuðborgarsvæðið. Ekki náðu allar áttum og heimtur ekki nema upp á 76% þar sem 24% fuglanna skiluðu sér ekki. Þar sem dúfan var merkt var hægt að komast að því hver eigandinn var og komst hún til síns heima þremur vikum eftir að keppni hófst.

Sjá frétt Húna.is

Fleiri fréttir