Keppnisknapinn - námskeið fyrir keppendur í íþrótta- og gæðingamótum
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður upp á fimm helga námskeið fyrir keppendur í íþrótta- og gæðingamótum. Námskeiðið skiptist í fjórar markvissar kennsluhelgar, auk fimmtu helgarinnar þar sem undirbúin er sýning og tekið þátt í formlegu móti.
Afrekskeppnisknapinn og reiðkennarinn Sigurður Sigurðarson mun hafa yfirumsjón með námskeiðinu, auk þess að vera aðalkennari þess. Að kennslunni koma einnig Lárus Ástmar Hannesson formaður Gæðingadómarafélagsins og Gunnar Reynisson sérfræðingur við LbhÍ.
Í námskeiðslýsingu segir:
„Námskeiðið Keppnisknapinn er hugsað fyrir þá sem vilja auka færni sína og reynslu í algengustu keppnisgreinum íslenska hestsins. Farið verður í þjálfun keppnishestsins, hvernig hann er sem best undirbúinn fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar og hvernig sýningar eru útfærðar á árangursríkan hátt. Skilgreindar verða sterkar og veikar hliðar hvers hests og knapa auk þess sem líkamlegt ástand hestsins verður skoðað allt námskeiðið. Kennslan er einstaklingsmiðuð, en lögð áhersla á að nemar fylgist með hver öðrum. Í gegnum allt ferlið verður hugað að markmiðum og þjálfunarstigi hestsins.“
Ekki er nauðsynlegt að vera með þjálfaðan keppnishest á námskeiðinu en hesturinn þarf að vera mikið taminn og gangtegundir nokkuð hreinar.
Námskeiðið verður keyrt samhliða námskeiði fyrir hestadómara og nokkuð verður um sameiginlegar kennslu- og æfingastundir þessara tveggja námskeiðshópa (með fyrirvara um breytingar).
Námskeiðið fer fram í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum dagana 3.-4. febrúar, 17.-18. febrúar, 16.-17. mars, 30.-31. mars og 27.-28. apríl. Tími frá kl. 15 -22 föstudaga, 9 -18 laugardaga. Síðasta helgin verður styttri (alls 86 kennslustundir). Hægt er að leita eftir gistingu á Hvanneyri með sameiginlegri eldhúsaðstöðu á gisting@lbhi.is.
Verð fyrir námskeiðið er 123 þúsund kr., innifalið er kennsla, gögn, veitingar, bás og fóður. Staðfestingargjald er 18 þúsund kr. en staðfesta þarf skráningu með því að millifæra á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Upphæðin er óafturkræf og er hluti af heildarupphæð. Kvittun skal senda á endurmenntun@lbhi.is. Hægt er að semja við gjaldkera um skiptingu greiðslna.
Þeir sem vilja skrá sig til þátttöku vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000. Fram þarf að koma nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.
Minnt er á starfsmenntasjóði.
Heimild: Hestamannafélagið Þytur