Kiljan frá Steinnesi efstur á Sörlastöðum
Stóðhesturinn Kiljan frá Steinnesi í Austur-Húnavatnssýslu stóð efstur allra hrossa á Héraðssýningu á Sörlastöðum í gær þar sem hann var sýndur í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri. Kiljan sem er m.a. í eigu Halldórs Þorvaldssonar á Sjónarhóli í Skagafirði hlaut fyrir sköpulag 8,35, fyrir hæfileika 8,95 og í aðaleinkunn 8,71.
Kiljan er einkar glæsilegur hestur og verður gaman að sjá hvernig honum vegnar á Landsmóti hestamanna í sumar. Sýnandi Kiljans var Þorvaldur Árni Þorvaldsson. Kiljan verður í húsnotkun á Hvoli sunnanlands og í Kýrholti Skagafirði eftir Landsmót.
IS2004156286 Kiljan frá Steinnesi
Örmerki: 968000001776303
Litur: 1521 Rauður/milli- stjörnótt glófext
Ræktandi: Magnús Jósefsson
Eigandi: Elías Árnason, Halldór Þorvaldsson, Ingolf Nordal
F.: IS1998187045 Klettur frá Hvammi
Ff.: IS1988165895 Gustur frá Hóli
Fm.: IS1983287105 Dóttla frá Hvammi
M.: IS1993256299 Kylja frá Steinnesi
Mf.: IS1981187020 Kolfinnur frá Kjarnholtum I
Mm.: IS1984256027 Hvönn frá Steinnesi
Mál (cm): 141 - 133 - 137 - 62 - 141 - 37 - 45 - 43 - 6,5 - 30,0 - 18,5
Hófa mál: V.fr.: 8,9 - V.a.: 8,2
Sköpulag: 7,5 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 9,0 - 6,5 = 8,35
Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 9,5 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 7,5 = 8,95
Aðaleinkunn: 8,71
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson