Kirkjukór Selfosskirkju með tónleika í kvöld
Kirkjukór Selfosskirkju er á ferð um Skagafjörð og heldur tónleika í Sauðárkrókskirkju föstudaginn 27. maí kl. 20:30. Fjölbreytt efnisskrá er á tónleikunum, Meðal annars flytur kórinn tvo nýja sálma í bland við klassíska kirkjulega tónlist frá ólíkum tímum. Alls eru 34 kórfélagar í kirkjukórnum og stjórnandi hans er Jörg Sondermann. Tónleikarnir í Sauðárkrókskirkju eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis.