Kjarval heiðraður á Stórveislu s.l. föstudag

Hrossarækt.is stóð fyrir stóðhestasýningu í Svaðastaðahöllinni á Króknum á föstudagskvöldið síðasta þar sem heiðurshestur sýningarinnar, höfðinginn Kjarval frá Sauðárkróki var heiðraður. Yfir 30 stóðhestar voru skráðir til leiks og sýndu glæsileg tilþrif og óhætt að segja að hver og einn hafi glatt þá fjölmörgu áhorfendur sem fylltu höllina.

Sveinn Brynjar Pálmason var mættur með myndavélina og smellti af í gríð og erg. Ótal fleiri myndir er hægt að sjá frá sýningunni á fésbók, undir Reiðhöllin Svaðastaðir.

.

Fleiri fréttir