Kjólarnir og glamúrinn á Emmy verðlaununum
Fröken Fabjúlöss elskar verðlaunaafhendingar eins og Grammys, Emmys, Óskarinn og Golden Globes... Það er að segja byrjunina á þeim! Verðlaunaafhendingin sjálf á aldrei neinn sérstakann sess, en aftur á móti er poppað og slökkt á símanum á meðan rauði dregillinn gengur yfir!!
Kjólarnir, glamúrinn, hárið, förðunin og hin almenna fegurð er það sem fangar hjarta Fröken Fabjúlöss og getur hún alveg gleymt sér yfir rauða dreglinum, og svo yfir myndagalleríunum vikurnar á eftir!
Emmy verðlaunin fóru semsagt fram seinasta sunnudag og hefur Frk Fab legið yfir kjólunum síðan og hefur náð að grysja út svona sín uppáhaldslúkk. Það sem Frk Fab þótti áberandi á Emmy verðlaununum er að flestir kjólarnir voru með svokölluðu hafmeyjasniði og minnti kjólatískan mikið á gamla Hollywoodglamorinn. Reyndar er Frk Fab að hugsa um að senda svona eins og 200 rækjusamlokur til Hollywood og láta deila þeim niður á leikkonurnar þar, þar sem þær eru margar hverjar greinilega orðnar glorsoltnar og veitir ekki af því að klára matinn sinn svona eins og einusinni. Okkur hérna í fegurðarhorni Fab finnst mikið fallegra að sjá konur með smá hold utan á sér.
Í myndasafninu hér að neðan finnið þið þau lúkk sem fönguðu athyglu Fröken Fabjúlöss og komment.