Kjördeildir og kjörskrá í Skagafirði
Kjörskrá Sveitarfélagins Skagafjarðar vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl 2011 verður lögð fram í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 21, miðvikudaginn 30. mars 2011 og mun liggja frami frá kl. 9:00 til 16:00 dag hvern, til kjördags.
Kjörstaðir við þjóðaratkvæðagreiðsluna verða þessir:
- Kjördeild I Félagsheimilinu Skagaseli - þar kjósa íbúar fyrrum Skefilsstaðahrepps.
- Kjördeild II í Bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra - þar kjósa íbúar fyrrum Sauðárkrókskaupstaðar, Rípurhrepps og Skarðshrepps.
- Kjördeild III Varmahlíðarskóla - þar kjósa íbúar fyrrum íbúar Staðarhrepps og Seyluhrepps.
- Kjördeild IV í Félagsheimilinu Árgarði - þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaðahrepps.
- Kjördeild VI í félagsheimilinu Höfðaborg Hofsósi - þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps.
- Kjördeild V Grunnskólanum á Hólum í Hjaltadal - þar kjósa íbúar fyrrum Viðvíkurhrepps og Hólahrepps.
- Kjördeild VII í Grunnskólanum á Sólgörðum - þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps
- Kjördeild VIII á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki - þar kjósa vistmenn Dvalarheimilis og sjúklingar á stofnuninni.
Þjóðskrá hefur opnað upplýsingaveitu sem birt er á vef Innanríkisráðuneytisins og getur kjósandinn skoðað hvar hann er á kjörskrá. Með því að slá inn kennitölu kjósandans kemur upp nafn hans, lögheimili, sveitarfélag og kjördæmi. Einnig birtast upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Þú kemst inn á síðuna HÉR
Frekari upplýsingar frá Innanríkisráðuneytinu varðandi kosningarnar er að finna HÉR