Kjöt og Mjólkurdagar í Skafó
Í dag, fimmtudag og á morgun, föstudag, eru Kjöt og Mjólkurdagar í Skagfirðingabúð. Mikið framboð er á kjöt og mjólkurvörum á tilboðsverði. Nú er um að gera að bæta á frystikisturnar fyrir veturinn.
Til fróðleiks má segja frá því að Skagfirðingabúð var opnuð 19. júlí 1983 og var Pétur Pétursson frá Álftagerði yfirsmiður byggingarinnar. Síðan þá hefur búðin þjónað Skagfirðingum og öðrum vel. En sem sagt. Það er rakið að líta við í Skafó og gera góð kaup í kjöti og mjólk. /hmj
