Knattspyrnudeild fær styrki til mótahalds
Byggðaráð Skagafjarðar hefur samþykkt að styrkja Knattspyrnudeild Tindastóls vegna mótahalda í sumar með þeim hætti að leggja til WC gáma og tjaldstæði á knattspyrnumótum félagsins í sumar til að mæta þeim mikla fjölda ferðamanna sem sækja Skagafjörð heim vegna mótanna.
Áætlaður kostnaður vegna þessa er kr. 983.000 og verður honum vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.