Kökubasar í dag til styrktar skagfirskum frjálsíþróttakrökkum

Í dag klukkan 16:00 verða frjálsíþróttakrakkar úr Tindastóli með kökubasar í Skagfirðingabúð og rennur afraksturinn í ferðasjóð en yfir 20 skagfirskir krakkar áætla keppnisferð á Gautaborgarleikana í sumar.

Krakkarnir í Tindastól ásamt krökkum úr Varmahlíð hafa verið með ýmsar fjáraflanir búnir að skipuleggja ýmsar uppákomur , kleinubakstur , kökubasara  og bingókvöld ásamt öðru .

-Þetta er keppni sem verður farinn í byrjun júlí og þegar hafa 22 krakkar úr Skagafirði á aldrinum 12 ára til 20 ára staðfest þáttöku á leikana sem verða haldnir 8. til 10. Júlí, segir Sigurjón Leifsson formaður frjálsíþróttadeidar Tindastóls.

Fleiri fréttir