„Komið í veg fyrir skaðlegustu áhrif frumvarpa ríkisstjórnarinnar“

Með því samkomulagi sem náðist í dag um afgreiðslu mála á Alþingi hefur tekist að koma í veg fyrir skaðlegustu áhrif frumvarpa ríkisstjórnarinnar um veiðigjald og breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á íslenskt efnahagslíf,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson formaður þingflokks framsóknarmanna í fréttatilkynningu frá Framsókn í gær.

Framsókn styður hækkun veiðigjalds en hefur lagt áherslu á að sú hækkun yrði innan skynsamlegra marka, á þeim grunni að atvinnu þúsunda einstaklinga í sjávarútvegi og tengdum greinum yrði ekki ógnað. Einnig hefur Framsókn lagt mikla áherslu á að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu séu unnar í sem víðtækastri sátt, segir í fréttatilkynningu.

Hluti samkomulagsins sem náðist í gær segir Gunnar Bragi vera skrifleg yfirlýsing frá Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Þar er fallið frá þeim hugmyndum stjórnarflokkanna sem Framsókn hefur talið skaðlegastar og gagnrýni í umsögnum sérfræðinga beindist helst gegn.

„Slík skrifleg yfirlýsing er mjög mikilvæg í ljósi fyrri reynslu af loforðum forystumanna ríkisstjórnarflokkanna,“ segir Gunnar Bragi og heldur áfram: „Samkvæmt yfirlýsingunni er frumvarpi um stjórn fiskveiða frestað til næsta þings. Fulltrúar allra þingflokka munu halda áfram samráðsvinnu og verði nýtt frumvarp um fiskveiðistjórnun lagt fram mun það byggjast á vinnu þess hóps. Öllum áformum um fyrningu aflaheimilda hefur því endanlega verið hafnað, enda hefði slíkt kostað þúsundir starfa.“

Veiðigjald er afmarkað til eins árs, það verði að hámarki frá 12,7 - 13,8 milljarðar króna. Gjaldið verður lagt á til eins árs en í millitíðinni mun sérfræðihópur endurmeta gjaldið. Ef forsendur gjaldsins reynast rangar verður það endurskoðað strax á fyrsta ári. Það sama á við ef verðþróun á mörkuðum eða aflabrestur gefa tilefni til endurskoðunar.

 


Fleiri fréttir