Komnar í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn

9. flokkur stúlkna í körfuknattleik hjá Tindastóli spilaði í A-riðli í Keflavík um sl. helgi. Á heimasíðu Tindastóls segir að mikil spenna hafi verið fyrir mótinu því ná þurfti einu af fjórum efstu sætum riðilsins til að komast í úrslitakeppnina.

Stelpurnar hófu mótið á því að tapa fyrir Breiðablik með einu stigi 34-35, sem var nokkuð óvænt, er kemur fram á vef Tindastóls. Hins vegar áttu þær góðan leik á móti Keflavík þar sem þær töpuðu með 19 stiga mun og er það minnsta tapið í vetur á móti Keflavík, sem hefur yfirburði í þessum flokki.

Þriðji leikurinn var gegn Haukum og tapaðist hann með 11 stigum og því ljóst að sigur yrði að vinnast á Hrunamönnum í síðasta leiknum til að komast í úrslitakeppnina. Það tókst, þar sem Tindastóll vann með 20 stiga mun. Hrunamenn unnu Breiðablik með tveggja stiga mun og því urðu liðin jöfn í 3.-5. sæti með einn sigur, en stórsigur Tindastóls á Hrunamönnum tryggði þriðja sætið.

Haukastelpur lentu í öðru sæti og mæta Tindastóli í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Breiðablik lenti í fjórða og mætir Keflavík í undanúrslitum. Úrslitakeppnin fer fram í Njarðvík helgina 19. - 21. apríl, rétt eins og úrslitakeppni Stúlknaflokks.

Sigrar sunnan heiða

Unglingaflokkur og drengjaflokkur Tindastóls í körfu spiluðu syðra um helgina og lönduðu sigrum í sínum leikjum.

Föstud. unglingafl. Kr - Tindastóll 64 - 77.
Stig: Ingvi 36, Agnar 3, Þröstur 2, Pétur 17, Friðrik Þór 9, Árni 2, Viðar 2, Sigurður
Páll 4, Ingimar 2.

Laugard. Drengjafl. ÍR - Tindastóll 76 - 86
Stig: Ingvi 31, Pétur 24, Sigurður Páll 20, Viðar 5, Friðrik Þór 5, Hannes 1.

Sunnud. Drengjafl. Fjölnir b - Tindastóll 70 -91
Stig: Sigurður Páll 27, Pétur 23, Hannes 16, Árni 12, Friðrik Jóh. 4, Viðar 4, Birkir 2,
Friðrik Þór 2, Finnbogi 1.

10. flokkur drengja keppti í C-riðli á Selfossi. Strákarnir unnu tvo leiki en töpuðu einum fyrir Snæfelli. Úrslit og stigaskor var eftirfarandi;

Tindastóll – Snæfell  51-62
Stigaskor: Arnar 14, Hlynur 12, Leó 8, Jónas 5, Friðrik 4, Pálmi 4, Atli 2

Tindastóll – FSu 61-43
Stigaskor: Leó 22, Arnar 16, Friðrik 9, Pálmi 7, Ágúst 5, Jónas 2

Tindastóll – Skallagrímur 61 – 33
Stigaskor: Arnar 20, Leó 15, Pálmi 13, Ágúst 9, Hlynur 4

Fleiri fréttir