Körfuboltabúðunum slitið - Friðrik Þór og Ólína Sif valin best

Eftir frábæra en erfiða viku, var körfuboltabúðunum slitið í dag. Í morgun fóru fram úrslit í einstaklingskeppnum innan hópanna og í þrautabrautinni og þá var stjörnuleikurinn leikinn og viðurkenningar afhentar.

Í yngsta hópnum var það Dagmar Björg Rúnarsdóttir sem sigraði í vítakeppninni en Örvar Pálmi Örvarsson, vann bæði þriggja stiga keppnina og 1 á 1.

Í miðjuhópnum var það Elvar Ingi Hjartarson sem sigraði í vítakeppninni, Sæþór Kristjánsson vann þriggja stiga keppnina og Gunnar Páll Björnsson 1 á 1.

Í elsta hópnum var það Friðrik Þór Stefánsson bar sigur úr býtum í vítakeppninni, Sigurður Páll Stefánsson vann þriggja stiga keppnina og Jón Valgeir Tryggvason 1 á 1.

Eins og áður segir voru þau Friðrik Þór Stefánsson og Ólína Sif Einarsdóttir valin bestu leikmenn búðanna, en þau Pálmi Þórsson og Bríet Lilja Sigurðardóttir voru valin efnilegust. Þá sigraði Kristinn Gísli Jónsson þrautabrautina.

Borce Ilievski yfirþjálfari körfuknattleiksdeildarinnar var afar ánægður með framkvæmd búðanna. "Já þetta tókst afar vel hjá okkur að mínu mati, allir voru kátir og glaðir og þá erum við það líka," sagði Borce í samtali við heimasíðuna. Hann sagði stjórn körfuknattleiksdeildarinnar og unglingaráð hafa unnið góða vinnu við undirbúning og hann þakkaði þeim aðkomuna að búðunum sem og Kára Maríssyni, sem var hans hægri hönd. Einnig Óskari Inga, Naglanum úr Nesinu og starfsfólki íþróttahússins þeim Badda, Ótthari, Hauki og Binna. "En fyrst og fremst vil ég þakka þessum frábæru krökkum sem sóttu búðirnar. Það var mangað að sjá framfarir þeirra og hversu vel erlendu þjálfararnir okkar náðu til þeirra. Þeir eru sannir fagmenn og áttu stóran þátt í því hvernig til tóks. Þjálfaranámskeiðið okkar var mjög gott að flestu leyti og við ætlum okkur að gera enn betur fyrir næstu búðir sem verða klárlega næsta sumar," sagði Borce að lokum.

Fleiri fréttir