Körfuboltakynning í Varmahlíð
Síðastliðinn fimmtudag fór Borce Ilievski körfuboltaþjálfari Tindastóls ásamt erlendu leikmönnunum þremur í Varmahlíð þar sem þeir hittu á krakka í 7.-10. bekk. 21 krakki mætti og skemmtu allir sér konunglega.
Byrjaði Borce á að kynna sig og leikmennina fyrir krökkunum og segja frá Körfuboltaskóla Tindastóls og áhuga á að innvinkla Varmahlíð í starfið. Því næst var krökkunum skipt í tvo hópa og stjórnuðu Borce og leikmennirnir æfingum og virtist gleði skína úr augum þeirra eftir að sviðsskrekkurinn rann af þeim.
Í lokin var svo öllum hóað saman í hóp en Hayward Fain hafi lofað að troða fyrir einn úr hópnum. Fékk Hayward svo krakkana til að kalla nafn sitt og klappa og tróð hann tvisvar glæsilega fyrir þau við mikinn fögnuð.
Að lokinni hópmyndatöku fengu svo allir sem mættu boðsmiða á leik Tindastóls og KR sem fram fór á föstudag. Hópur af krökkum mætti svo á leikinn og virtust þau skemmta sér mjög vel enda um skemmtilegan leik að ræða þó endirinn hafi mátt vera annar.
/Tindastóll.is