Kormákshlaup 2011
Á sumardaginn fyrsta fór fram fyrsta hlaupið af fjórum sem Umf. Kormákur gengst fyrir þar sem keppt er í sex flokkum karla og kvenna. Keppt er um þrenn verðlaun í hverjum flokki en til að eiga möguleika á verðlaunum fyrir sæti þurfa keppendur að taka þátt í þremur hlaupum af fjórum og ræður þá tími í þremur hlaupum röð keppenda.
Hlaupið er frá Félagsheimilinu Hvammstanga og hefst annað keppnishlaupið á morgun laugardaginn 30. apríl kl. 11:00 og síðan þau tvö síðustu laugardagana 7. og 14. maí kl. 11:00.
Hlaupvegalengdir
Aldursflokkar
- Fædd 2004 og síðar 300m
- Fædd 2001 - 2003 600m
- Fædd 1998 - 2000 800m
- Fædd 1995 - 1997 800m
- Fædd 1985 - 1994 800m
- Fædd 1984 og fyrr 800m
Þeir sem hlaupa 800m keppa um bikar sem gefinn var af Göngufélaginu Brynjólfi til minningar um Bjarka Heiðar Haraldsson.