Kosið um sameiningu 3. desember

Í gær, þriðjudaginn 1. nóvember, var 6. fundur samstarfsnefndar um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra haldinn á Borðeyri og var samþykkt á fundinum að kosið yrði um sameiningu í almennri íbúakosningu 3. desember nk. Samstarfsnefndin mun annast undirbúning atkvæðagreiðslunnar í samráði við viðkomandi kjörstjórnir og Innanríkisráðuneytið.

 

Um miðjan nóvembermánuð verður kynningarbæklingi um sameininguna dreift inn á hvert heimili í sveitarfélögum. Almennir kynningarfundir um sameininguna verða svo haldnir þriðjudaginn 22. nóvember n.k. kl. 16:00 á Borðeyri og 20:00 í Húnaþingi vestra.

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir