Kosning um kjarasamninga lýkur í kvöld

Kosning um kjarasamninga við Samband sveitarfélaga lýkur kl. 20.00 í kvöld en hún fer fram á netinu með rafrænum hætti og eru félagar í Starfsmannafélagi Skagafjarðar hvattir til að taka þátt.

Árni Egilsson formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar segir það mikilvægt að félagsmenn segi sitt álit með því að kjósa og kvetur hann alla til að nýta atkvæðarétt sinn.

Félagsmenn hafa nú þegar fengið net- eða bréfapóst með lykilorði sem þeir nota þegar þeir kjósa. Tengill inná kosninguna er á samflot.is

Fleiri fréttir