Kostnaður við refa- og minkaveiðar óvíða meiri
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
16.10.2015
kl. 08.28

Sveitarstjórn Húnaþings vestra vill að ríkið endurgreiði virðisaukaskatt við refa- og minkaveiðar. Mynd: Árborg Ragnarsdóttir.
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra kynnti oddviti fundargerð landbúnaðarráðs frá 1. október sl. Beiðni ráðsins um einnar milljónar króna fjárveitingu vegna vetrarveiða á ref árið 2016 var vísað til fjárhagsáætlunar næsta árs en jafnframt samþykkt tillaga þar sem lögð er áhersla á að sveitarfélögum verði endurgreiddur virðisaukaskattur af refa-og minkaveiðum.
Í greinargerð með tillögunni segir: „Sveitarfélagið Húnaþing vestra er víðfeðmt og landmikil heiðarlönd og kostnaður við refa-og minkaveiðar því meira en víða annars staðar. Stuðningur ríkisins við refa-og minkaveiði í stórum landbúnaðarsamfélögum eins og Húnaþingi vestra er afar mikilvægur.“