KR-ingar sterkari á endasprettinum
Tindastóll heimsótti KR-inga í Dalsey, Hillblom og Lynn-höllina í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Talsvert var undir því um var að ræða undanúrslitaleik í Poweradebikar karla í körfubolta. Stólarnir voru alveg til í slaginn og spiluðu vel fyrstu þrjá fjórðungana en sprungu á limminu í þeim fjórða og fór svo að lokum að KR-ingar fögnuðu sigri, 81-69.
Reyndar hefði mátt halda að Stólarnir hefðu spilað á heimavelli en stuðningsmenn Tindastóls voru talsvert fyrirferðarmeira í sjónvarpstæki undirritaðs en hrunþrungin andlit stuðningsmanna KR. Jafnræði var með liðunum framan af leik en Stólarnir börðust vel og náðu að stjórna hraðanum í leiknum. Að loknum fyrsta leikhluta voru strákarnir yfir, 21-24 og voru Hayward Fain og Kitanovic í aðalhlutverkum hjá Stólunum. Heldur dró úr stigaskori í öðrum leikhluta en Stólarnir voru allan tímann skrefinu á undan heimamönnum og leiddu í hálfleik, 36-38.
Þriðji leikhluti var sömuleiðis í járnum en liðin gerðu bæði mörg mistök og tapaðir boltar voru fleiri en góðu hófi gegndi. Reyndar hafði RÚV fengið sigursælan KR-þjálfara til að aðstoða við lýsingu á leiknum og honum var mikið í mun um að benda á hvað Stólarnir töpuðu mörgum boltum - sem var rétt en KR-ingar höfðu tapað boltanum álíka oft þegar þarna var komið sögu. Tindastólsmönnum gekk hins vegar afleitlega að koma fleirum en Hain og Kita í eitthvað stuð í sókninni og ljóst að það þurftu fleiri að komast í gang ef ekki átti illa að fara. Staðan að loknum þriðja leikhluta var jöfn 54-54.
KR-ingar byrjuðu betur í fjórða leikhluta og nú kom í ljós að meiri breidd skilaði KR-ingum auðveldum stigum þegar þeir unnu boltann of auðveldlega af Stólunum og ekki hvað síst voru heimamenn í frákastaham í fjórða leikhluta. Hvað eftir annað hirtu þeir fráköst undir körfu Stólanna og skiluðu boltanum síðan í körfuna. Smá saman skildi á milli liðanna og þegar upp var staðið sigruðu KR-ingar með 81 stigi gegn 69.
Sem fyrr segir þá voru Fain og Kita máttarstólparnir í liði Tindastóls og áttu báðir fínan leik. Fain gerði 32 stg og tók 14 fráköst og Kita gerði 25 stig. Alls gerðu þeir tveir 57 af 69 stigum Stólanna. Aðrir leikmenn náðu sér ekki almennilega á strik í leiknum þó svo að liðið hafi lengstum spilað fína vörn. Þannig hirti til dæmis Helgi Rafn aðeins 2 fráköst í leiknum og þeir 3ja stiga frændur, Rikki og Svabbi, fundu ekki fjalirnar sínar svo eitthvað sé nefnt.
KR-ingar voru seigir að vanda á sínum sterka heimavelli og var Pavel Ermolinski potturinn og pannan í leik þeirra. Það má segja að þeir hafi unnið leikinn á fráköstunum en lið KR tók 50 fráköst á meðan Stólarnir tóku 28. Þá töpuðu Stólarnir 26 boltum en KR 18.
Í samtali við Körfuna sagði Borce Ilijevski þjálfari Tindastóls eftir leikinn: „Vandamálið hjá okkur í dag var skortur á einbeitingu í lokin og djúpur bekkur hjá KR. Stóru strákarnir hjá KR höfðu svo afgerandi áhrif á leikinn í lokin, komu ferskir inn og tóku mikilvæg sóknarfráköst. Við náðum ekki að svara KR á lokasprettinum og vissum að í dag myndum við mæta sterkum andstæðing en ég var ánægður með leik minna manna fyrstu 30-35 mínútur leiksins. Því miður köstum við þessu frá okkur á fimm mínútum.”
Í hinum undanúrslitaleiknum báru Grindvíkingar sigurorð af liði Hauka þannig að það verða KR og Grindavík sem mætast í úrslitaleiknum.
Stig Tindastóls: Fain 32, Kita 25, Cunningham 5, Rikki 4, Helgi Rafn 2 og Helgi Freyr 1.