Krans eða ekki krans? Það er aðventan!

Fröken Fabjúlöss náði með mikilli útsjónarsemi að smeygja sér inni í Jólablað Feykis sem kom út í gær, og var þar að stússast í hinu og þessu.

Á meðal þess sem hún dundaði sér við í blaðinu var að henda saman nokkrum hugmyndum í einfalda og auðvelda aðventukransa, öðrum til hægðarauka í amstri jólavertíðarinnar. Með góðfúslegu leyfi ritstjóra Feykis ákváðum við hérna í aðventukransadeild Fabjúlössmans að smella aðventukransahugmyndunum hérna inn í Fabjúlösshornið þannig að sem flestir gætu nú notast við hugmyndirnar góðu!

Undir myndunum hérna fyrir neðan hefur Frk. Fab skrifað inn lýsingu á því hvað hún gerði og notaði og hvar hægt er að verða sér út um skreytingaefnið.

Fleiri fréttir