KS - Deildin bein útsending
KS - Deildin bein útsending
Bein útsending verður á netinu frá töltkeppni KS – Deildarinnar sem fram fer í kvöld en slóðin er Slóðin er http://wms.vodafone.is/tindastoll . Fyrirfram er búist við hörkukeppni en fjöldi góðra hrossa eru skráð til leiks, þar á meðal 9 hross sem hafa náð 1v. í kynbótadómi.
Auk þeirra mæta þekkt keppnishross og hross sem eru að byrja sinn keppnisferil og hafa vakið athygli í vetur. Keppnin hefst klukkan 20:00 í kvöld og er fyrirfram búist við fjölmenni í Svaðastaðahöllina en þeir sem ekki komast geta fylgst með á netinu.