KS-deildin byrjar með látum
Fyrsta keppni KS-Deildarinnar var haldin í gærkvöldi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þegar knapar reyndu með sér í fjórgangi. Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnanesi sigruðu nokkuð örugglega í annars jafnri og spennandi keppni.
Greiðasemi Magnúsar Magnússonar vakti athygli en hann lánaði Tryggva Björnssyni keppnishestinn sinn Punkt frá Varmalæk og náðu þeir að koma sér upp í annað sætið eftir að hafa komið efstir inn úr B-úrslitum.
Að sögn Stefáns Reynissonar eins aðstandenda keppninnar gefur mótið góða von um skemmtilega keppni í vetur og það fengu þeir fjölmargu áhorfendur sem mættu á pallana í gær að sjá. Stefán vildi koma þökkum til dómaranna sem þóttu standa sig vel.
Fjórgangur
Úrslit í forkeppni
Knapi Hestur Eink
- Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 7,23
- Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum 6,90
- Bjarni Jónasson Komma frá Garði 6,73
- Árni Björn Pálsson Fura frá Enni 6,73
- Sölvi Sigurðarson Ögri frá Hólum 6,57
- Mette Mannseth Stormur frá Herriðahóli 6,57
- Hörður Óli Sæmundarson Lína frá Vatnsleysu 6,57
- Tryggvi Björnsson Punktur frá Varmalæk 6,53
- Þórarinn Eymundsson Þeyr frá Prestbæ 6,40
- Elvar E Einarsson Ópera frá Brautarholti 6,30
- Þorsteinn Björnsson Haukur frá Flugumýri II 6,03
- Ísólfur Líndal Þórisson Nýey frá Feti 6,03
- Erlingur Ingvarsson Mist frá Torfunesi 6,00
- Magnús B Magnússon Bylgja frá Dísarstöðum 2 5,90
- Baldvin Ari Guðlaugsson Röst frá E-Rauðalæk 5,80
- Riikka Anniina Gnótt frá Grund 5,73
- Ragnar Stefánsson Neisti frá Hauganesi 5,73
- Jón Herkovic Töfrandi frá Árgerði 5,33
B-úrslit
- Tryggvi 7,03
- Mette 6,53
- Hörður 6,50
- Sölvi 6,50
- Þórarinn 6,33
A-úrslit
- Eyjólfur 7,57
- Tryggvi 7,27
- Bjarni 7,23
- Ólafur 7,20
- Árni 6,87