Kvartað undan slæmri umgengni
Umhverfis- og samgöngunefnd Svf. Skagafjarðar barst kvörtun vegna slæmrar umgengni við ruslagáma við þjóðveg í landi Breiðagerðis í Skagafirði en þar er umgengnin sögð vægast sagt hræðileg. Málið var tekið fyrir á fundi nefndarinnar sl. föstudag en fleiri umræður voru um sorphirðumál þar sem ýmsar úrbætur eru sagðar fyrirhugaðar á gámastöðvum í dreifbýli sveitarfélagsins.
Á fundinum var tekið fyrir erindi frá Elínborgu Erlu Ásgeirsdóttur í Breiðagerði vegna ruslagáma við þjóðveg í landi Breiðagerðis.
„Hún segir m.a. að umgengnin við gámana sé vægast sagt hræðileg, gámarnir oft yfirfullir og enginn timburgámur á svæðinu. Í bréfinu er m.a. lagt til að svæðið í kringum gámana sé hreinsað, að timburgám verði bætt við og að sveitarfélagið komið þeim skilaboðum til þeirra sem nýta svæðið til sorplosunar að góðrar umgengni sé krafist,“ segir í fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar.
Fram kemur að Umhverfis- og samgöngunefnd taki undir að bæta þurfi umgengni við gámasvæði. Svæðið var hreinsað eftir að bréfið barst og kannað verður hvort bætt verði við timburgám á svæðið við fjárhagsáætlanagerð næsta árs. Jafnframt leggur nefndin til að kannað verði hvort starfsmaður landbúnaðarnefndar geti tekið að sér eftirlit með gámasvæðum þar sem þess er þörf.
„Umhverfis- og samgöngunefnd harmar sinnuleysi og slæma umgengni við gámasvæði sveitarfélagsins og hvetur notendur gámasvæða að ganga betur um. Sorphirðumál í dreifbýli eru í heildarendurskoðun og stefnt er á að koma með tillögur að úrbótum fyrir fjárhagsáætlun 2016,“ segir í fundargerðinni.
Úrbætur á gámastöðvum í dreifbýli fyrirhugaðar
Á sama fundi var tekið til umræðu fyrirhugaðar úrbætur á gámastöðvum í dreifbýli sveitarfélagsins og voru lögð fram til kynningar drög af teikningum af afgirtum gámasvæðum. Nefndin lagði til að unnin verði kostnaðaráætlun fyrir afgirt gámasvæði í Varmahlíð og á Hofsósi fyrir fjárhagsáætlun næsta árs.
Á fundinum samþykkti nefndin einnig að verða við beiðni um að koma tímabundið fyrir timbur- og járnagámi í Hjaltadal. „Gámunum hefur nú verið komið fyrir á gatnamótum Hólavegar og Ásavegar og verða þar út september mánuð. Tilkynningu vegna gámanna hefur verið dreift á bæi við Ásaveg og Hólaveg,“ segir í fundargerð nefndarinnar.