Kvennakórinn Sóldís með sína fyrstu tónleika

Fyrstu tónleikar kvennakórsins Sóldísar í Skagafirði verða haldnir á konudaginn, sunnudaginn 20. febrúar nk. í menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Kórinn sem hóf starfsemi s.l. haust sló eftirminnilega í gegn á kvennafrídeginum er hann söng á samkomu sem haldinn var í tilefni dagsins í Miðgarði.

Um 40 konur starfa með kórnum sem undanfarið hefur æft tvisvar í viku. Flestar búa þær í Skagafirði en fimm þeirra koma vestan úr Húnavatnssýslu.

Að sögn Sigurlaugar Maronsdóttur hefur starfið gengið ótrúlega vel, konurnar áhugasamar og duglegar að mæta á æfingar.

Tónleikarnir hefjast eins og áður sagði sunnudaginn 20. febrúar klukkan 16:00 og kostar 2500 krónur inn. Innifalið er dýrindis konudagskaffihlaðborð og segir Sigurlaug tilvalið fyrir eiginmenn að bjóða konum sínum á tónleika og kaffi í tilefni dagsins.

Fleiri fréttir