Kvennalandsliðið í júdó æfir í íþróttahúsinu á Sauðárkróki

Anna Soffía Víkingsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna í júdó, Mynd: www.tindastoll.is
Anna Soffía Víkingsdóttir, landsliðsþjálfari kvenna í júdó, Mynd: www.tindastoll.is

Sterkustu júdókonur landsins munu koma saman á Sauðárkróki helgina 24. - 26. ágúst næstkomandi og æfa undir stjórn landsliðsþjálfara kvenna í Júdó, Önnu Soffíu Víkingsdóttur.

Þó að um landsliðið sé að ræða eru þessar æfingabúðir líka hugsaðar fyrir allar stelpur, 15 ára og eldri, sem hafa áhuga á því að æfa júdó. Ekki eru sett nein beltaskilyrði fyrir þátttöku og geta yngri iðkendur með nægilega reynslu fengið undanþágu frá aldurstakmarki. Þetta er fyrsta skrefið í að gera kvennajúdó sýnilegra á Íslandi og verður öllum boðið að fylgjast með opinni æfingu sem fer fram frá klukkan 15 til 17 laugardaginn 25. ágúst.

Fram kemur á heimasíðu júdódeildar Tindastóls að það sé heiður fyrir júdódeildina að Sauðárkrókur hafi orðið fyrir valinu sem æfingastaður og eru allir hvattir til að leggja leið sína í íþróttahúsið á laugardagseftirmiðdaginn og fylgjast með landsliðinu æfa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir