Kvennaljómi í Kakalaskála
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
18.06.2015
kl. 18.05
Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar íslenskra kvenna verður samkoma í Kakalaskála í Kringlumýri í Skagafirði á morgun, föstudaginn 19. júní, undir yfirskriftinni Kvennaljómi. Þar verður m.a ljóðalestur og léttur söngur og veitingar.
Til máls taka sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup, dr. Guðrún Ingólfsdóttir og Sigurður Hansen segir sögu af konu frá Sturlungaöld.
Léttar veitingar í boði – allir velkomnir jafnt karlar sem konur.
Heimild: Sjónhornið