Kvikmyndar síðasta bardaga Grettis
Eins og fram kom á forsíðu Feykis í gær er Bandaríkjamaðurinn William Short nú staddur hér á landi í þeim tilgangi að kanna sögusvið bardaga sem koma fyrir í íslenskum víkingasögum. William er áhugamaður um bardagalistir víkinga og stendur, ásamt öðrum meðlimum í samtökunum Hurstwic í Boston, fyrir rannsóknum og námskeiðum sem tengjast bardagalist víkingaaldar. Í sumar mun hópurinn sviðsetja og kvikmynda víg útlagans Grettis Ásmundarsonar í Drangey.
William hefur lengi verið áhugamaður um víkinga og bardagalist þeirra. Verður myndin um Gretti önnur sinnar tegundar sem hann gerir hér á landi, en áður hefur hann myndað síðasta bardaga Gísla Súrssonar í Geirþjófsfirði. Ásamt leiknum bardögum eiga DVD myndirnar að nýtast sem æfingamyndbönd fyrir þá sem vilja læra bardagalistir víkinga. Einnig innihalda þær viðtöl við sérfræðinga í hverri sögu fyrir sig, sem hafa gefið upplýsingar um bakgrunn bardaganna. William segir markmiðið að taka bardagana upp á þeim stöðum sem þeir áttu sér stað og mun hann sjálfur skrifa handritið.
„Íslendingasögurnar eru besta heimildin um bardaga á þessum tíma, þær eru að einhverju leyti skáldaðar en við trúum því að þær innihaldi raunsannar lýsingar á bardögum á víkindaöld. Þær eru okkur því mjög mikilvægar.” Aðspurður um hverjir kaupi myndir af þessu tagi segir William: „Allir, áhugafólk um víkinga, Íslendingasögur, íslenska náttúrufegurð og bókmenntir.“ DVD diskarnir eru aðallega seldir gegnum Amazon en munu einnig fást í íslenskum búðum.
Á ferð sinni um Skagafjörð undanfarna daga hefur William hitt fólk sem aðstoðar hann við undirbúninginn og segist hann mjög ánægður með árangur ferðarinnar. Myndin verður svo tekin upp seinnipartinn í sumar og hefur þegar verið valinn aðalleikari úr Huirstwiv hópnum. William segir að vinnsla DVD disksins um Gísla sögu hafi tekið um hálft ár og því megi búast við að myndin um Gretti verði tilbúin fyrri hluta árs 2016.