Kvöldið leggst vel í Hrafnhildi Ýr

Eva Rún, 9 ára, bendir stolt á mynd af mömmu sinni, Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur, sem keppir í Voice Ísland í sjónvarpi símans í kvöld. Áhorfendur kjósa í símakosningu þá sem komast áfram í keppninni.
Eva Rún, 9 ára, bendir stolt á mynd af mömmu sinni, Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur, sem keppir í Voice Ísland í sjónvarpi símans í kvöld. Áhorfendur kjósa í símakosningu þá sem komast áfram í keppninni.

Söngkonan Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Dæli í Víðidal kemur fram í beinni útsendingu í Voice Ísland í kvöld. „Kvöldið leggst mjög vel í mig,“ sagði Hrafnhildur þegar Feykir hafði samband við hana rétt í þessu. „Mig langar að þakka fyrir allan stuðninginn og minna á að ég kemst ekki áfram nema vera kosin,“ sagði hún ennfremur.

Hrafnhildur Ýr komst áfram eftir æsispennandi ofureinvígi við þá Tuma og Þóri og fór svo að þau komust öll áfram en Svala Björgvins „stal“ Hrafnhildi í sitt lið. Húnvetningar styðja að sjálfsögðu sína konu og verður sýnt beint frá keppninni á veitingastaðnum Sjávarborg á Hvammstanga.

Stuðningsfólk hennar hefur verið ötult við að taka myndir af sér við strætóskýli þar sem er að finna myndir af Hrafnhildi og merkja með myllumerkinu „TeamHrabby“. Meðal annars dóttir hennar, Eva Rún 9 ára, sem bendir stolt á myndina af mömmu sinni á meðfylgjandi mynd.

Þá má geta þess að hin 17 ára gamla Guðbjörg Viðja Antonsdóttir, á tengsl í Skagafjörðinn, þó hún kenni sig við Dalvík. Foreldrar hennar, þau Inga María og Anton Páll Níelsson eru reiðkennarar við Háskólann á Hólum.

Fleiri fréttir