Kynningarbæklingur körfuboltabúðanna kominn í dreifingu á heimavelli

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur nú sett saman bækling um körfuboltabúðirnar sem starfræktar verða í sumar undir stjórn Borce Ilievski.  Bæklingnum er nú dreift meðal heimamanna til kynningar en þar eru iðkendur hvattir til að forskrá sig svo gera megi áætlanir um fjölda lausra sæta fyrir aðkomukrakka.

Í bæklingnum er að finna upplýsingar um búðirnar og eru iðkendur heimamanna sem hug hafa á að taka þátt í búðunum, beðnir um að skrá sig sérstakri forskráningu svo tryggt verði að þau geti fengið pláss og svo sjá megi hvað hægt verður að taka á móti mörgum aðkomukrökkum.

Bæklingurinn
Senda þarf forskráningu á netfangið korfuboltabudir@tindastoll.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á það netfang.

Þann 30. mars, verður kynningarfundur í Húsi frítímans um körfuboltabúðirnar og hefst fundurinn kl. 20.00. Hægt verður að forskrá iðkendur á fundinum.

/Tindasóll.is

Fleiri fréttir