Kynningarfundur um dreifnám FNV í Húnaþingi vestra

Kynningarfundur um væntanlegt dreifnám, sem kemur til með að standa íbúum Húnaþings vestra til boða, fer fram í Félagsheimilinu Hvammstanga á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 18.

Samkvæmt auglýsingu sem birt var í nýjasta eintaki Sjónaukans munu fulltrúar frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra kynna hvað er framundan og svara fyrirspurnum, ásamt fulltrúum sveitastjórnar Húnaþings vestra.

Fundurinn er opin öllum íbúum Húnaþings vestra.

 

Fleiri fréttir