Kynningarfundur vegna Nettómótsins í Reykjanesbæ
Unglingaráð í körfuknattleik stefnir á þátttöku Tindastóls í Nettó-mótinu í Reykjanesbæ, 5. – 6. mars n.k. Mótið er fyrir minniboltaiðkendur og stefnir körfuknattleiksdeildin á þátttöku bæði minnibolta yngri og eldri, eða 3. – 6. bekk ef áhugi er fyrir hendi.
Kynningarfundur vegna mótsins verður haldinn miðvikudaginn 16. febrúar kl. 18.00 í íþróttahúsinu. Þar verður farið yfir skipulag mótsins og undirbúning að þátttöku Tindastóls í því.
Nú þegar er hægt að nálgast upplýsingar um mótið á slóðinni http://www.nettomot.blog.is/blog/nettomot/ Þar má m.a. finna bækling á pdf-formi.
Unglingaráð