Kynningu á Evrópu unga fólksins frestað

Kynningu á styrkjamöguleikum hjá Evrópu unga fólksins sem halda átti í Húsi frítímans í dag milli kl 18:00 og 19:00 hefur verið frestað. Kynningin verður haldin þriðjudaginn 13. mars frá klukkan 18:00-19:00. Þann sama dag mun fulltrúi Evrópu unga fólksins kynna möguleika á styrkjum fyrir útskriftarnemum í FVN.

Evrópa unga fólksins er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action, og er samstarfsverkefni ESB, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ. Áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára og þá sem starfa með ungu fólki. Á hverju ári veitir Evrópa unga fólksins á Íslandi um 1.300.000€ í styrki til góðra verkefna sem skipulögð eru af ungu fólki og/eða fyrir ungt fólk.

Allir sem starfa með ungu fólki eða eru á aldrinum 13-30 ára eru hvattir til að mæta á kynninguna og sjá hvað er í boði.

 

 

Fleiri fréttir