Kynnt verður nýtt leikrit í Húsi frítímans í kvöld
Í kvöld kl. 20:00 er startfundur Sæluvikuverkefnis Leikfélags Sauðárkróks. Setja á upp nýtt leikrit eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson og Árna Gunnarsson, með þekktum lögum eftir Geirmund Valtýsson og verður það kynnt á fundinum.
Verkið er stórt og mikið og þarfnast mikils mannskaps og eru allir sem áhugasamir eru hvattir til að mæta á fundinn eða láta heyra í sér fyrir fund til að sjá hversu stór hópurinn verður. 16 ára aldurstakmark.
Þeir sem vilja vera með en komast ekki, geta haft samband í síma 862-5771.
Fundurinn hefst eins og áður segir kl. 20 og er hann í Húsi frítímans.