Kynþokkafullir úlfar mest lesnir á mbl.is
Hljómsveitin Úlfur Úlfur, með Króksurunum Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni innanborðs, voru nýverið í viðtali sem birt var á mbl.is og er nú ein mest lesna fréttin hjá vefmiðlinum. Í viðtalinu undir fyrirsögninni „Finnast úlfar kynþokkafullir“ segja strákarnir frá upphafi hljómsveitarinnar, hvernig þeir komu sér á framfæri og lýsa tilfinningunni að heyra lögin sín spiluð í útvarpinu, „það er mjög hressandi að heyra í sjálfum sér í útvarpinu,“ segja þeir í viðtalinu og hlægja.
Hljómsveitin er búin að vera fullbókuð undanfarna mánuði og ljóst er að mikið er um að vera hjá þeim á næstunni, þar sem þeir ætla að fylgja plötu þeirra Föstudeginum langa eftir. Þeir hyggja á að halda mikinn fagnað á Faktorý þann 2. mars nk. í tilefni af því að Arnar og Helgi eiga báðir afmæli í febrúar og að auki eiga strákarnir tveir 10 ára samstarfsafmæli og hljómsveitin á eins árs afmæli. Þá verður frítt inn og lofa strákarnir miklu fjöri og góðum gestum.
Hér má sjá viðtalið í heild sinni.